Thursday, August 31, 2006

Maaaagnificent !

Er ekki gaman að búa á lítilli, fámennri og tæknivæddri eyju sem virðist vera byggð eingöngu rokksjúkum nátthröfnum?

Eða erum við Frónarar kannski bara svona samhent þegar á reynir?

Remember - það er kosning aftur í næstu viku. Kaupið nóg af kaffi og æfið ykkur í að pikka inn hundleiðinlega staðfestingarkóda - we must do it again!

Bara einu sinni í viðbót og þá er hann kominn í lokaþáttinn...

Tuesday, August 29, 2006

Muniði.... muniði....




Jæja, bitches!

Allir spenntir fyrir Rockstar: Supernova? Reglulega gaman að eftir allar Eurovision niðurlægingarnar að við íslendingar fáum það aftur á tilfinninguna að við séum it! Eða... að Magni sé it! Og hann er flottur, strákurinn og stendur sig vonandi vel í kvöld. Muniði bara að kjósa!! 5 sms kosta innan við 100 kall... það er ekki mikið fyrir að halda honum inni og horfa á úrslitaþátt með The Iceman innanborðs. Upp með símana, nirflar Íslands - kjósiði!! Myndasvæðið í þessari bloggfærslu er helgað Magna... eða æðunum á hausnum á Magna. Hann er Rokkari! Með stóru R.

Skólinn er byrjaður hjá strákunum og allt að komast í rútínu aftur, guði sé lof. Þorsteinn er kátur í skólanum þó að hann sé ekkert alveg voðalega sáttur að láta skilja sig eftir á morgnana. Einhver voðalegur spenningur í gangi. Að öðru leiti gengur bara allt súper vel, líst mjög vel á kennarann hans, sýnist hún geta haft ágætis stjórn á þessum litlu vitleysingum.

Synir mínir eru að éta mig út á gaddinn! Hvað varð um tvo litlu strákana mína sem borðuðu eins og flugur? Núna éta þeir eins og tveir fullvaxta togarasjómenn á vertíð. Þeir borða hvor fyrir sig miklu meira en ég og reyndar klára stundum matinn áður en ég næ að fá mér. Þeir eru reyndar ekkert að blása út þannig að ég verð bara að ganga út frá því að þeir þurfi þessa orku. Vitið þið um mörg 6 ára börn sem borða tvo hamborgara??? Nei... ég bara spyr.

Afmælið mitt fór ósköp vel, fallega og rólega fram. Bauð foreldrum og systrum í afar hóflegt kaffiboð á laugardeginum. Fékk ossalega fína pakka (gaman gaman!!), glænýjan síma, ljósmyndaverk, skartgripi og fullt af blómum (þar af einn blómvönd sem er næstum stærri en ég). Ég ellllska afmæli. Yndislegur kvöldverður með enn yndislegri kærasta og svo var gripið í Buzz með nokkrum útvöldum seinna um kvöldið. Það er aldreilis ljómandi að vera orðinn svo gamall að maður þarf ekki einu sinni að halda partý. Fólk skilur það bara þegjandi og hljóðalaust að maður er orðinn of gamall fyrir þessháttar vitleysisgang! BTW, hafið þið farið í BUZZ? Þeir sem hafa áhuga á tónlist og solleis ættu virkilega að prófa.

Fyrir utan spenning yfir Supernova, erfiða skólamorgna og tvo hákarla við matarborðið er semst allt frábært að frétta. Lítið en gott.

Ekki gleyma að kjósa í kvöld!!! Því þá þarf ég að lemja ykkur... og mér er illt í hendinni.

Góðar stundir, suckers

Tuesday, August 15, 2006

Frí og framkvæmdir!

Ætli það sé ekki kominn tími á blogg, svei mér þá. Stikla hér á stóru...

Frí
Er búin að vera í sumarfríi núna á aðra viku. Fríið hefur verið að mestum hluta nýtt í það að klára það sem á eftir að gera hérna í íbúðinni. Keypti mér plötur á milli eldhússkápanna og ég og Sunna brugðum okkur í iðnaðarmannabúninginn og skelltum þeim upp! Þetta fer nú allt að klárast þarna í eldhúsinu :)


Annað hefur líka fengið að sitja á hakanum í íbúðinni minni þangað til núna í fríinu. Tók tölvuherbergið alveg í gegn, svefnherbergið bíður og herbergi strákana þarf líka smá yfirhalningu.

Skelltum okkur í bústað í Húsafelli síðustu helgi og það var fínt fyrir utan veikindi kærasta og systur. Húsafell er snilldarstaður fyrir börn, nóg að gera. Fékk algjört flipp stórkostlegri uppblásinni hoppidýnu, skoðuðum Hraunfossa, Barnafoss og Surtshelli... sem reyndist svo ekki vera Surtshellir, heldur einhver wannabe Surtshellir sem heitir Stefánshellir. Well... illa merkt helladrasl! Gaman samt :)

Nýr bíll !!

Já viti menn! Haldiði að skvísan sé bara ekki búin að kaupa sér bíl. Eftir að hafa verið á merktum fyrirtækisbíl í fimm ár þá er það lúxus! Fjárfesti í Hondu CRV, klassafjölskyldubíl. Loksins nóg pláss fyrir strákana og fullt af dóti. Mamma átti svona bíl fyrir nokkrum árum og mig hefur alltaf langað í svona bíl. Bara ljúft sko :D Fórum á honum í Húsafell um helgina og hann reyndist mjög vel - bara snilld!

Afmæli

Já mar. Þá er maður bara að detta í "ðe bigg þrí ó". Þar sem ég er með afburðum löt og skemmtanageld kona að þá hef ég ákveðið að vera bara róleg. Smá kaffiboð fyrir fjölskyldu, útað borða með Mr.Right og svo lítilsháttar get-to-gether seinna um kvöldið. Ég tók vel á því á 25 ára afmælinu, hélt riiiisaveislu og allt það. Nenni því ekki aftur. Kannski þegar ég verð fertug, sjáum til. Kannski þegar ég vinn Óskarinn næst, sjáum til.

Rockstar Súbbernóa!

Það hafa allir skoðun á Rockstar :) Magni hefur komið mér á óvart, því að ég hef aldrei verið hrifin af honum. Hann hefur greinilega ekki verið á réttri hillu í Á móti sól! Hann er bara þrususöngvari, strákgerpið. Mér finnst bara þessir þættir eitthvað svo... æjjj. Fake? Fóní? Með óverreited hasbeens grúppu? Allavega, Magni er að standa sig vel, en ég vona hans vegna að hann vinni þetta ekki :) Mér líst ekkert á þessa grúppu. Fyrir utan Jason eru þetta bara vitleysingar. Ég meina... halló.... Gilby Clarke?! Who the hell? Með G'n'R á hvað... einni plötu?? Tommy Lee... ó mæ god... honum væru allir búnir að gleyma ef ekki væri fyrir Pamelu Anderson. Ég er ekki að segja að þetta séu slæmir tónlistarmenn... en mér finnst þeir bara overrated. Fyrir utan Jason samt... eins og áður hefur komið fram :) Eitt sem hefur verið frábært í þessum þáttum - gamla góða "grönjsið" rifjaðist upp fyrir manni. Svona overall þá verð ég að segja að það er mín uppáhalds tónlistartegund.

Annað

Það er allt hið besta að frétta annars. Lífið er oftast nær ósköp ljúft - eða eins ljúft og heilbrigð manneskja getur gert kröfu á :) Synir mínir eru alltaf jafn yndislegir, þeir eru þó á einhverju ömurlega leiðinlegu rifrildisstigi núna. Þeir rífast allan daginn eins og tvær gamlar úrillar kerlingar. Einhver valdabarátta í gangi sem vonandi verður lokið sem fyrst. Ég er alltaf jafn ótrúlega skotin í kærastanum mínum og sakna hans eins og versta gelgja ef ég hitti hann ekki í nokkra daga. Það hlýtur að vera jákvætt!

Læt þetta duga að sinni, lofa að vera duglegri á blogginu :)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com