Wednesday, March 29, 2006

Þriðja áskorun - I'm on fire!

Vá, er ég dugleg eða hvað!!?? Nú eru líka allar áskoranir búnar þannig að þið getið tekið það til baka að ég svari aldrei neinu ;) Formlegt afsökunarbréf væri vel þegið.


1. HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANA? 6:30... snúsa stunum til 6:45

2.EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER VÆRI ÞAÐ? frægum segirðu...? Veit ekki... er ekki sökker fyrir selebbum.

3. GULL EÐA SILFUR? Bæði betra :)

4. HVAÐ VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ? úúú... nú þarf ég að hugsa. Wedding Crashers held ég alveg örugglega.

5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTURINN ? Sjá síðustu áskorun :)

6. HVAÐ BORÐARÐU Í MORGUNMAT? LGG+

7. HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN STÓR? Ég verð ekki stór enn.. draumurinn er að geta unnið full-time við tölvugrafík

8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI? Nibb... ekki nema í ýti á tunguna :-o

9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR? Tónlist og góður svefn

10. HVAÐ ER MIÐNAFNIÐ ÞITT? á ekki svoleiðis :(

11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA? sitt lítið af hverju bara

12. SUMAR EÐA VETUR? Sumar :)

13. UPPÁHALDS ÍS? Æi... hvað er með þessar endalausu ísspurningar? Bara súkkulaðiís þá

14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR Á POPP? Hafiði smakkað Nóakropp með poppi? Það er surprisingly delicious

15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN? Ljósblár... annars fer það að sjálfsögðu eftir því hvað ég ætla að nota hann í. Langar t.d. ekkert í ljósbláan bíl! Rauður er líka mjög fallegur. Og gulur...

16. UPPÁHALDS BÍLLINN ÞINN? Alltaf verið Toyota-fan. Draumabíllinn er samt Lexus

17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU? Fer eftir skapi og matarlyst. Skinka og ostur er klassík.

18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ? Ég fer ekki í frí! :)

19. HVAÐA PERSÓNUEIGINLEIKA FYRIRLÍTURÐU? Óheiðarleika, sýndarmennsku, eigingirni og grunnhyggni

20. UPPÁHALDSBLÓM? Rauð rós er nú afskaplega falleg þó að það sé klisja

21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVERSU LENGI MYNDIRÐU BÍÐA ÁÐUR ENÞÚ SEGÐIR FÓLKI FRÁ ÞVÍ? Ég myndi aldrei segja neinum ;)

22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN? Sódavatn

23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN? Loftið er hvítt... hitt er flísaklætt... svona einhvern veginn ljóst held ég.

24. HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI ÞINNI? vó... uuhhh... a.m.k. 10

25. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI? Á Kanarí (skilst að það sé paradís gamla fólksins) að spila bridds og golf til skiptis :)

26. GETURÐU JÖGGLAÐ? Já... en bara með tveimur boltum og ekkert sérstaklega hratt!

27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR? Föstudagur! Dööh!

28. RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN? Hvítt

29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI? Var boðið í bæði bröns og kvöldmat af mínum heittelskaða. Frábær dagur :)

30. ERTU MEÐ LÍFFÆRAGJAFAR KORT? Nei... en mar ætti kannski að fá sér?

31. HVORT MYNDIRU VILJA EIGNAST STRÁK EÐA STELPU? Næst ÆTLA ég að eignast stelpu. Mig langar að greiða og setja fléttur og svona :)

32. HVAÐ KEMUR ÞÉR Í GÍRINN? Gírinn? Hvaða gír?

33. ERTU FEMINSTI? Nei. En ég er jafnréttissinni engu að síður.

34. FLOTTASTI LÍKAMSHLUTINN Á HINU KYNINU? Handleggir, augu, bringa...

35. ELSKARÐU EINHVERN? Játs

35. SEGÐU EITTHVAÐ FALLEGT UM MANNESKJUNA SEM SKORAÐI Á ÞIG: Hún er þeim frábæru kostum gædd að vera eina manneskjan sem ég þekki sem notar sömu skóstærð og ég :D Og hún er yndisleg ;*

Tuesday, March 28, 2006

Önnur áskorun - allt að koma :)

4 störf sem ég hef unnið við um ævina:

* Allt muligt á Hótel Laugum (19 ára - sumarvinna)
* Afgreiðslustelpa í Þingey, Húsavík (18 ára- sumarvinna)
* Grafíker hjá Pírana (25-26 ára)
* Gæðastjóri hjá Ísfugli (25 - ?)

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur og aftur...

* St. Elmo's Fire (lengi lifi 80´s)
* Forrest Gump (besta ever)
* Fletch (bæði eitt og tvö, snilld)
* Goonies

4 staðir sem ég hef búið á:

* Mosfellsbær
* Aðaldalur
* Akureyri
* Reykjavík - fimm staðir í Breiðholti :)

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:

* Friends - aldrei horft jafnmikið á neitt...
* Simpsons - ameríka í öðru ljósi en venjulega :)
* Prison Break - snilldarlega vel gerðir þættir og allt morandi í samsæriskenningum
* 24 - spennó, spennó!

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

* Algarve
* Djúpivogur ;)
* Köbenhavn
* London (baby)

4 síður sem ég skoða daglega (fyrir utan blogg):

* www.isfugl.is
* www.mbl.is
* www.netfrelsi.is
* www.b2.is

4 matarkyns sem ég held upp á:

* Austurlenskur matur, Nings :)
* Kjúklingur - believe it or not
* Ítalskur matur a la Jói
* Lambalæri hjá mömmu

4 bækur í mestu uppáhaldi:

* Sólarsaga - ótrúlega vel skrifuð bók
* Bridged Jones diary :) endalaus húmor
* Ísfólkið eins og það leggur sig - ótrúlega mikil afþreying á árum áður.
* Frankie says relapse - sorgleg :/

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

* Á einkasólarströnd með kærastanum
* Í slökunarnuddi hjá Guffu
* Heima... sofandi
* Á sporbaug um jörðu með ótrúlega góðan kíkir

Monday, March 27, 2006

Einn af þessum listum

Loksins blogg... eða kannski bara svona redding!

Takk fyrir að skamma mig fyrir að blogga ekki, segir manni að það er allavega einhver að lesa þetta :) Ég redda mér með því að svara einum af þessum listum og áskorunum sem ég hef fengið... kannski svara ég fleiri áskorunum á næstu dögum. Ég veit ekki hvað er að commentakerfinu, ég nenni ekki að pæla í því ákurrat núna. Ég fékk eiginlega ógeð af því að vesenast með þetta commentakerfi á sínum tíma :) Hérna kemur allavega listinn, bæti við commentum(skáletrað) fyrir aftan til að gera þetta aðeins persónulegra ;)


Ég hef...
reykt sígarettu( X) reyki margar sígarettur á dag og EKKi reyna að fá mig í reyklausa liðið strax!

klesst á bíl vinar/vinkonu( )

stolið bíl foreldranna( )

verið ástfangin/n(x) hef verið og ER!

verið sagt upp af kærasta/kærustu (X) já... en ég hlusta bara ekkert á það!

verið rekin/n( )

lent í slagsmálum(x) Ég lenti í slagsmálum á Gauknum... eða sko ekki ég reyndar. Systir mín ákvað að ganga í málið. En var samt ekki hent út eða neitt svoleiðis.

læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum( ) Nei... tilhvers hefði ég átt að gera það? Til að fara í 10 km gönguferð til Mosfellsbæjar?

haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki(X) já... og það var leiðinlegt!

verið handtekin/n( ) Nei, ég er svoddan góðborgari!

farið á blint stefnumót( ) Nei alltof mikil gunga fyrir svoleiðis

logið að vini/vinkonu(x) Já, en ekkert "skaðlegt"

skrópað í skólanum( x) ójá... eins oft og ég komst upp með :)

horft á einhvern deyja( )

farið til Canada( ) pfft, hvern langar hvort sem er til Canada!?

farið til Mexico( ) pfft, hvern langar hvort sem er til Mexico!?

ferðast í flugvél(x)

kveikt í þér viljandi (ekki alvarlega sko)( ) Hvurslags spurning er þetta? Ég hef reyndar næstum því sviðið af mér augabrúnirnar en það var svo sannarlega ekki viljandi!

borðað sushi (x) já, en hef ekki gert upp við mig hvort mér finnst það gott eða bara overpriced hrár fiskur!

farið á sjóskíði ( ) Nei, en ég hef farið á Jet-ski! Fer á sjóskíði einn daginn...

farið á skíði(x) samt fáránlega sjaldan miðað við að ég ólst upp við hliðina á Skálafelli!

hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu(x) jájá, oft og mörgum sinnum. Samt ekki deit sko. Nema að bíóferð með þremur irc-nördum teljist sem deit.... held samt ekki.

farið á tónleika(x) Oh já... guði sé lof fyrir það :)

tekið verkjalyf(x) já... og ábyggilega aldrei tekið jafnmikið af þeim eins og undanfarinn mánuð vegna inflúensuviðbjóðs!

elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna(x) ó, já

legið á bakinu úti og horft á skýin(x) aha... og til að gera þetta ennþá væmnara þá hef ég ábyggilega verið að tyggja strá í leiðnni

búið til snjóengil(x) oft, oft , oft! En ekki núna í vetur reyndar

haldið kaffiboð(x) já og það er gaman :)

flogið flugdreka(x) ég sökka í flugdrekaflugi... og finnst það þ.a.l. leiðinlegt ;)

byggt sandkastala(x) Já en ekki á gullinni strönd við Karabíahafið, geri það síðar.

hoppað í pollum(x) já ... ég var barn einu sinni

hoppað í laufblaðahrúgu( ) minnist þess ekki nei. Er þetta upprunalega ameríkst próf eða?

rennt þér á sleða(x) auðvitað! Það er gaaaaman... eða var það allavega í fyrravetur ;)

svindlað í leik(x) já eflaust... man samt ekki eftir því í fljótu bragði.

verið einmana(x) já oft... ég er félagsvera. Þarf einhvern nálægt mér.

sofnað í vinnunni/skólanum(x) ójá... jarðfræði 103... need I say more?

notað falsað skilríki(x) bjó þau m.a.s. til sjálf og á þau ennþá :) Ég er fædd ´75 á þeim :)

horft á sólarlagið(x)

fundið jarðskjálfta(x) samt ekki þennan sem var um daginn! Það þarf meira en einhvern smotterís skjálfta til að hrista upp í mér sko ;)

sofið undir berum himni(x) já... en ekki heila nótt!

verið kitluð/kitlaður(x) í gær var ég kitluð... og ég MUN hefna mín

verið rænd/rændur(x) vinur minn stal einu sinni Def Leppard diski af mér... ég fann hann samt hjá honum nokkrum árum seinna enda merktur í bak og fyrir!

verið misskilin/n(x ) stanslaust! Ég hlýt að þurfa að vera eitthvað skýrari þegar ég tala!

klappað hreindýri/geit/kengúru(x) Geit! Í hinum eina sanna húsdýragarði! Hendin á mér lyktaði eins og geit allan daginn :(

farið yfir á rauðu ljósi( x) Ooooog verið stoppuð fyrir það.... samt ekki sektuð!

verið rekin/n eða vísað úr skóla( ) Nei, furðulegt nokk.

verið með spangir/góm( )

liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni(x) já hver hefur ekki upplifað það?

borðað líter af ís á einu kvöldi ( ) ég held að ég geti sagt að ég hafi ekki borðið heilan líter! Er ekki ísstelpa... finnst hann samt alveg góður sko.

fengið deja vu-(x) örsjaldan en það er freaky shit!

dansað í tunglskininu(x) sko... ég ætla að segja já afþví að ég dansa mikið þegar ég er undir áhrifum áfengis og þar sem tunglið skín oft þegar svo er....

fundist þú líta vel út( x) það kemur stundum fyrir... því miður ekki oft... en stundum :)

verið vitni að glæp(x) Every day of my life! Það er glæpur að ég sé ekki drottning!

efast um að hjartað segði þér rétt til( x) já af og til flögrar það að manni. En er það ekki bara mannlegt?

verið gagntekin/n af post-it miðum( ) Whut??!! Ég er hrifin af þeim... en gagntekin?? nahh!

leikið þér berfætt/ur í drullunni(x) já... í leirtjörninni heima í Mosó :) mjúkt....

verið týnd/ur( ) Held ekki... ekki nema í huganum bara ;)

synt í sjónum(x) kom mér á óvart hversu saltur hann er :)

fundist þú vera að deyja(x) verandi dramadrottning þá er svarið að sjálfsögðu já :)

grátið þig í svefn(x) held samt að ég hafi hætt að gráta áður en ég sofnaði

farið í löggu og bófa leik(x) aha... hvernig væri að skella sér í svoleiðis aftur? Hvað með LaserTag eða Paintball??

litað nýlega með vaxlitum(x) í síðustu viku - ég 5 og 7 ára syni

sungið í karaókí(x) en bara sem "bakrödd"

borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum ( ) minnist þess ekki... gæti samt verið

gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki(x) ó vá!! milljón sinnum... eða trilljón sinnum...

hringt símahrekk(x) "Er Bolli heima? Nei? úr hverju drekkurðu þá?? HoHoHo!" I had my moments in the 80´s ;)

hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér(x) það er vont!!

stungið út tungunni til að ná snjókorni( )

dansað í rigningunni( ) þetta hlýtur að vera amerískt! Ég hef vísvitandi farið út að hjóla í rigningu en dansað.... nei.

skrifað bréf til jólasveinsins( )

verið kysst/ur undir mistilteini( ) Ok ok. Þar höfum við það. Þetta ER amerískt :D

horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um (x)

blásið sápukúlur( x) þær eru hið fullkomna form :)

kveikt bál á ströndinni( ) nei... ég hef sjaldan kveikt eld!

komið óboðin/n í partý(x) maður hefur kíkt við sko :)

verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í( )

farið á rúlluskauta/línuskauta(x) Línu... :) Gaman gaman :) Og gott fyrir rass og læri.

hefur einhver óska þinna ræst(x) segi ekki hvaða óskir

farið í fallhlífastökk( )

hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig (x) einu sinni fékk ég afmælisveislu í sumarbústað :) Það var gaman og ég var mjög surprised :)


Ég skora ekki á neinn að gera þetta próf. Ég vil ekki setja pressu ;)
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com